Borghildur Erlingsdóttir sæmdi Helga Hauksson gullmerki KRAFT
Helgi Hauksson, alþjóðadómari, var á kraftlyftingaþingi 26. febrúar sl. sæmdur gullmerki KRAFT með kransi. Fráfarandi formaður sambandsins, Borghildur Erlingsdóttir, rifjaði upp óeigingjarnt starf hans í þágu íþróttarinnar og sæmdi hann gullmerkinu fyrir hönd stjórnar. Var því fagnað af fundarmönnum með lófaklappi. Að því loknu þakkaði Helgi fyrir sig og hélt stutta ræðu þar sem hann fór yfir feril sinn í íþróttum og starfi innan íþróttarinnar.Read More »Helgi Hauksson sæmdur gullmerki KRAFT