Skráning er hafin á Íslandsmeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður sunnudaginn 19. apríl. Mótshaldari er Kraftlyftingafélag Reykjavíkur. Mótið verður haldið í húsakynnum World Class á Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið akarason@gmail.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 29. mars. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis sunnudaginn 5. apríl. Keppnisgjald er 9.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
