Skip to content

Kristín Þórhallsdóttir Evrópumeistari !

Kristín sem keppir í -84 kg flokki mætti svo sannarlega öflug á pallinn í dag. Fyrir mótið var Kristín tilnefnd í fyrsta sæti en allt getur gerst á pallinum á keppnisdegi. Kristín opnaði í hnébeygju með 205 kg sem hreyfðust vel. Í annarri beygjunni hækkaði hún í 215 kg sem hreyfðust eins og opnunin. Kristín hækkaði í 225 kg í lokabeygjunni sem hún kláraði með stæl. Sú lyfta var nýtt heimsmet og Evrópumet  í Master 1 (öldungaflokki 1) ! Kristín opnaði í bekkpressu með 112,5 kg. Hækkaði um 5 kg í annarri en náði ekki að klára lyftuna. Í þriðju umferðinni reyndi Kristín aftur við 117,5 kg sem fóru upp að þessu sinni. Kristín opnaði í réttstöðulyftu með 210 kg á stönginni. Hún hækkaði í 225 kg í annarri umferð og kláraði þá lyftu af öryggi. Sú lyfta var gaf Kristínu heimsmet og Evrópumet  í samanlögðu í Master 1 (öldungaflokki 1). Í þriðju og lokalyftunni reyndi Kristín við 235 kg sem hreyfðust ekki en það skipti ekki máli. Evrópumeistaratitilinn var kominn í hús ! Samanlagður árangur varð 567,5 kg. Innilega til hamingju með Evrópumeistaratitilinn og öll metin, Kristín !