Skip to content

EM í klassískum kraftlyftingum – Þorbjörg og Aron Friðrik

Lokadagur EM í klassískum kraftlyftingum var í dag. Ísland átti tvo keppendur á pallinum. Það voru þau Þorbjörg Matthíasdóttir sem keppir í +84 kg flokki og Aron Friðrik Georgsson sem keppir í +120 kg flokki.

Þorbjörg byrjaði sterk í hnébeygjunni með fisléttri 187,5 kg beygju. Hún hækkaði um 10 kg í næstu umferð og kláraði 200 kg örugglega. Í þriðju umferð voru 210 kg á stönginni sem Þorbjörg beygði af öryggi og þar með 5 kg persónuleg bæting. Þorbjörg opnaði í bekkpressu með þægilegum 92,5 kg og hækkaði síðan í 100 kg sem fór af öryggi upp. Í þriðju umferð bekkpressu reyndi Þorbjörg við jöfnun á sínu besta með 105 kg en náði ekki að klára lyftuna. Í réttstöðulyftunni opnaði Þorbjörg á fisléttum 187,5 kg. Í annarri umferð hækkaði hún í 200 kg sem hreyfðust vel. Þorbjörg hækkaði í 212,5 í þriðju umferð sem var tilraun til 10 kg persónulegrar bætingar en því miður vildi stöngin ekki hreyfast frá gólfi. Samanlagður árangur varð 510 kg sem er jöfnun á hennar besta. Innilega til hamingju með bætinguna og mótið, Þorbjörg !

Aron Friðrik opnaði sterkur með 287,5 kg hnébeygju. Í annarri lyftu tók hann af öryggi 302,5 kg. Aron Friðrik reyndi síðan við 5 kg persónulega bætingu í þriðju beygju með 312,5 kg, sú lyfta fór upp en var dæmt ógild vegna dýptar.. Í bekkpressu opnaði Aron Friðrik á léttum 187,5 kg. Hækkaði síðan í 200 kg í annarri umferð. Í þriðju voru 207,5 kg á stönginni sem hefðu orðið persónuleg bæting en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Aron Friðrik opnaði í réttstöðulyftu með öruggum 270 kg. Í annarri umferð hækkaði hann um 10 kg í 280 kg en náði ekki að klára lyftuna og ákvað að sleppa þriðju lyftu vegna meiðsla. Samanlagður árangur varð 772,5 kg. Innilega til hamingju með mótið, Aron Friðrik !