
Í gær keppti Guðný Ásta Snorradóttir á Heimsmeistaramótinu í bekkpressu með búnaði. Guðný keppir í +84 kg öldungaflokki 2. Guðný opnaði á öruggum 135 kg sem strax tryggðu henni heimsmeistaratitilinn! Í annarri lyftu voru 142,5 kg sett á stöngina sem var jöfnun á hennar besta. Guðný lyfti þyngdinni en fékk dæmda ógilda vegna tæknivillu. Í lokalyftunni hækkaði Guðný í 145 kg sem hún kláraði af öryggi og 2,5 kg persónulega bæting í hús. Innilega til hamingju með titilinn, bætinguna og mótið, Guðný !
Seinna í dag mætir Anton Haukur Þórlindsson (-83 kg drengjaflokkur) á keppnispallinn (pallur 2) í bekkpressu með búnaði. Keppninn hefst kl. 14.30 að íslenskum tíma
Á morgun, sunnudaginn 31. maí keppa tveir Íslendingar í bekkpressu með búnaði:
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.
