Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískri bekkpressu – Jón Gunnar og Guðný

Ísland átti tvo fulltrúa á keppnispallinum í dag. Það voru þau Jón Sigurður Gunnarsson (-59 kg flokkur) og Guðný Ásta Snorradóttir (+84 kg flokkur) en bæði kepptu þau í opnum flokki í klassískri bekkpressu.

Jón Sigurður var fyrstur á keppnispallinn. Hann opnaði á léttri 115 kg lyftu. Í annarri umferð hækkaði Jón Sigurður upp í 122,5 kg, sem eru 2,5 kg frá hans eigin Íslandsmeti. Jón Sigurður fór létt með þessa lyftu eins og þá fyrstu. Í lokalyftunni gerði Jón Sigurður tilraun við að bæta eigið Íslandsmet þegar hann meldaði 127,5 kg. Flott tilraun en var því miður of þung í dag. Innilega til hamingju með mótið, Jón Sigurður !

Guðný var næst á keppnispallinn. Hún opnaði á þægilegum 117,5 kg. Í annarri lyftu hækkaði hún í 120 kg sem hún kláraði af öryggi. Þar með voru komin tvö ný Íslandsmet í öldungaflokki 1 og 2, en Guðný er í öldungaflokki 2 en keppti í dag í opnum flokki. Í þriðju og lokaumferð hækkaði Guðný í 122,5 kg sem hún negldi og aftur tvö ný Íslandsmet í hús. Innilega til hamingju með öll metin og mótið, Guðný !

Guðný fær ekki langa hvíld en hún verður mætt aftur á keppnispallinn á morgun, föstudaginn 29. maí. Þá hefst keppnin í bekkpressu með búnaði :
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg öldungaflokkur 2, Pallur 2, kl. 14.00 að íslenskum tíma.