Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískri bekkpressu – Eva, Benóný og Þórður

Það voru þrír Íslendingar í unglingaflokki sem kepptu í dag í klassískri bekkpressu. Það voru þau Eva Valdimarsdóttir (-57 kg), Benóný Helgi Benónýsson (-93 kg) og Þórður Skjaldberg (-105 kg).

Eva var fyrst á keppnispallinn. Hún opnaði á öruggum 75 kg. Í annar lyftu hækkaði Eva upp í 80 kg sem hreyfðust hægt upp en hún kláraði lyftuna af festu. Sú lyfta var einnig jöfnun á hennar besta í þessum þyngdarflokk. Eva reyndi við persónulega bætingu í þriðju lyftu og hækkaði upp í 85 kg en því miður var hún aðeins of þung í dag. Innilega til hamingju með mótið, Eva !

Næstur á keppnispallinn var Benóny. Hann keppti í feykisterkum og fjölmennum hópi. Benóný opnaði á þægilegum 187,5 kg. Í annarri umferð hækkaði hann um 10 kg og kláraði 197,5 kg lyftuna örugglega. Það var mikil barátta í síðustu umferð um verðlaunasætin þrjú og var Benóný með í þeirri baráttu. Hann reyndi við 205 kg í lokalyftunni sem var tilraun til að slá eigið Íslandsmet sem er 200,5 kg og að hækka upp í fyrsta sætið tímabundið. Því miður voru 205 kg aðeins of þung í dag. Innilega til hamingju með mótið, Benóný !

Þriðji Íslendingurinn á keppnispallinn var Þórður Skjaldberg. Hann opnaði í fyrstu umferð með 167,5 kg á stönginni sem hreyfðust vel. Hann hækkaði í 175 kg í annarri umferð sem hann náði að klára af öryggi. Sú lyfta var einnig jöfnun á hans besta. Í lokaumferðinni hækkaði Þórður í 180 kg sem var tilraun til persónulegrar bætingar um 5 kg sem tókst hjá honum, og fagnaði hann því vel. Innilega til hamingju með mótið, Þórður ! 

Á morgun, fimmtudaginn 28. maí, byrjar keppni í opnum flokki í klassískri bekkpressu. Ísland á þá tvo fulltrúa:
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg opinn flokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.