Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískri bekkpressu – Guðrún og Grímur Nói

Ísland átti tvo fulltrúa á keppnispallinum í dag. Það voru þau Guðrún Ásgeirsdóttir og Grímur Nói Pétursson sem kepptu bæði í klassískri bekkpressu. Guðrún keppir í -69 kg telpnaflokki og Grímur í -83 kg drengjaflokki.

Guðrún var fyrri af þeim tveim á keppnispallinn. Hún opnaði á þægilegum og öruggum 75 kg. Í annarri lyftu hækkaði hún í 80 kg. Sú þyngd hreyfðist alveg jafnvel og opnunin. Í þriðju lyftu reyndi Guðrún við bronsið með 85 kg á stönginni, einnig tilraun við 4 kg bætingu á hennar eigin Íslandsmeti. Því miður vildu þau ekki upp að þessu sinni. Innilega til hamingju með flott mót, Guðrún !

Grímur mætti síðar á keppnispallinn. Hann opnaði með 147,5 kg á stönginni sem hreyfðust vel. Í annarri umferð var þyngdin hækkuð um 7,5 kg sem var tilraun til jöfnunar á hans besta. Grímur kláraði þá lyftu örugglega. Grímur hækkaði í þriðju umferð í 162,5 kg sem var tilraun til nýs Íslandsmets en því miður gekk það ekki upp í dag. Innilega tl hamingju með flott mót, Grímur Nói !

Á morgun, miðvikudaginn 27. maí,  mæta þrír frá Íslandi á keppnispallinn (klassísk bekkpressa):
Eva Valdimarsdóttir, -57 kg unglingaflokkur, kl. 09.30 að íslenskum tíma.
Benóný Helgi Benónýsson, -93 kg unglingaflokkur, kl. 17.00 að íslenskum tíma.
Þórður Skjaldberg, -105 kg unglingaflokkur, kl. 17.00 að íslenskum tíma.