Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu (klassík og búnaður) sem fram fer laugardaginn 20. júní. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og verður endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Mótsstaður er íþróttahöllin við Skólastíg, Akureyri.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur þar sem fram kemur nafn, kennitala, félag og þyngdarflokkur. Þá skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.
Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@ka.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 30. maí. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 6. júní. Keppnisgjald er 7000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
