Skip to content

Heimsmeistaramótið í bekkpressu með búnaði – Anton Haukur

Fulltrúi Íslands á keppnispallinum í dag á Heimsmeistaramótinu í bekkpressu með búnaði var Anton Haukur Þórlindsson. Hann keppir í -83 kg drengjaflokki. Anton opnaði með 170 kg á stönginni en stöngin fór úr ferli og hann náði ekki að klára lyftuna. Í annarri lyftunni voru aftur 170 kg melduð sem Anton lyfti af öryggi. Í þriðju lyftunni var 175 kg hlaðið á stöngina sem er jöfnun á hans besta. Anton negldi lyftuna og þar með tryggði hann sér heimsmeistaratitilinn ! Innilega til hamingju með titilinn og mótið, Anton !

Á morgun, sunnudaginn 31. maí keppa tveir Íslendingar í bekkpressu með búnaði: 
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.