Skip to content

Heimsmeistaramótið í bekkpressu með búnaði – Jón Gunnar og Elín

Lokadagur Heimsmeistarmótsins í bekkpressu var í dag. Ísland átti tvo keppendur á lokadeginum þar sem þeir kepptu í bekkpressu með búnaði í opnum flokki. 

Jón Sigurður Gunnarsson (-59 kg flokkur) keppti fyrr í vikunni í klassískri bekkpressu en að þessu sinni var hann mættur með búnaði. Hann opnaði á 165 kg, tilraun til nýs Íslandsmets. Jón náði að klára lyftuna og fékk hana gilda en kviðdómur snéri henni við vegna tæknivillu. Í annarri lyftu var sama þyngd á stönginni en því miður þá fór stöngin úr ferli og Jón náði ekki að klára. Í lokaumferð voru 170 kg sett á stöngina. Lyftan leit vel út í byrjun en á uppleið gekk það ekki alveg upp. Þetta fer í reynslubankann hjá Jóni. 

Elín Melgar Aðalheiðardóttir (-69 kg flokkur) opnaði með 125 kg á stönginni sem hún lyfti örugglega. Lyftan var jöfnun á hennar besta. Í annarri umferð hækkaði Elín í 132,5 kg sem hún negldi og þar með 7,5 kg persónuleg bæting komin í hús. Í lokaumferðinni voru 137,5 kg sett á stöngina en því miður náði Elín ekki að klára lyftuna. Innilega til hamingju með bætinguna og mótið, Elín !