Skráning er lokið á Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu (klassík og búnaður) sem fram fer laugardaginn 20. júní. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og verður endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Mótsstaður er íþróttahöllin við Skólastíg, Akureyri.
Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 6. júní. Keppnisgjald er 7000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
