Skip to content

Skráningu er lokið á Menningarbikarinn í bekkpressu

 

Skráningu er lokið á Menningarbikarinn í bekkpressu sem haldinn verður á Menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst. Keppt er í klassískri bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Lyftingadeild Ármanns í samstarfi við SBD Ísland. Mótið verður haldið við Spennustöðina þar sem félagsmiðstöðin 100 og 1 heldur til við Austurbæjarskóla. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 9. ágúst. Keppnisgjald er 6.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.