Skip to content

Menningarbikarinn í bekkpressu – Skráning hafin

Skráning er hafin á Menningarbikarinn í bekkpressu sem haldinn verður á Menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst. Keppt er í klassískri bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Lyftingadeild Ármanns í samstarfi við SBD Ísland. Mótið verður haldið við Spennustöðina þar sem félagsmiðstöðin 100 og 1 heldur til við Austurbæjarskóla. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdar- og aldursflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer).  Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.

Hér er um meistaramót að ræða og gildir því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningu skal senda á netfangið [email protected] með afriti á [email protected] fyrir miðnætti laugardaginn 2. ágúst. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 9. ágúst. Keppnisgjald er 6.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.