Skip to content

Skráning – Menningarbikarmótið í klassískri bekkpressu.

Skráning er hafin á Menningarbikarmótið í klassískri bekkpressu (allir aldursflokkar) sem haldið verður á Menningarnótt þann 24. ágúst. Mótshaldari er Kraftlyftingadeild Ármanns í samstarfi við SBD Ísland. Staðsetning og endanleg tímaáætlun verður auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.

Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdar- og aldursflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.

Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningar skal senda á netfangið thorunnb@kraft.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 3. ágúst. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 10. ágúst. Keppnisgjald er 6000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.