Skráning er hafin á Íslandsmótið í kraftlyftingum með búnaði og Íslandsmótið í klassískri bekkpressu, sem haldin verða 2.–3. mars nk. Staðsetning verður birt fljótlega og endanleg tímasetning verður ákveðin þegar skráningu er lokið og keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda inn upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Skýrt skal taka fram á hvoru mótinu viðkomandi ætlar að keppa á (ef ekki báðum), en einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra og netföng ásamt símanúmeri ábyrgðarmanns skráningar. Hér er um meistaramót að ræða og gildir því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningar skal senda á netfangið lara@kraft.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 11. febrúar. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk hjá þeim sem eru skráðir til þátttöku er til miðnættis sunnudaginn 18. febrúar. Keppnisgjald er 7.500 kr. á þrílyftumótið en 6500 kr á bekkpressumótið og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.