Skip to content

Skráning á Bikarmótið í kraftlyftingum með búnaði.

Skráning er hafin á Bikarmótið í kraftlyftingum í búnaði (allir aldursflokkar) sem haldið verður 17. ágúst nk. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og fer mótið fram í húsnæði félagsins að Tryggvabraut 22, Akureyri. Endanleg tímaáætlun verður auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.

Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdar- og aldursflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@ka.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 27. júlí. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 3. ágúst. Keppnisgjald er 8000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.