Kristín Þórhallsdóttir og Viktor Samúelsson eru kraftlyftingakona og -karl ársins 2021.
Það var ákveðið á stjórnarfundi KRAFT 14.des. sl
Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn á árinu, en þau hafa verið sjálfum sér, íþróttinni og Íslandi til sóma með afrekum sínum og framkomu.
Kristín Þórhallsdóttir – fædd 1984 – Kraftlyftingafélag Akraness
Kristín keppir í klassískum kraftlyftingum í -84kg flokki.
- Stigahæsti kraftlyftingamaður Íslands árið 2021 með 106,03 stig.
- Önnur á heimslista í -84kg flokki
- Evrópumeistari 2021
- Bronsverðlaunahafi á HM
- Gull í hnébeygju á EM
- Gull í bekkpressu á EM
- Gull í réttstöðulyftu á EM
- Brons í hnébeygju á HM
- Evrópumet í hnébeygju með 220 kg
- Evrópumet í samanlögðu með 560 kg, en það er fjórði besti árangur sem náðst hefur í þessum flokki í sögunni.
- Íslandsmeistari 2021
- Hefur bætt öll Íslandsmet á árinu
- Sigraði á Reykjavíkurleikunum 2021
Viktor Samúelsson – fæddur 1993 – Kraftlyftingafélag Akureyrar
Viktor keppir í klassískum kraftlyftingum og kraftlyftingum í -105kg flokki.
Stigahæsti kraftlyftingakarl Íslands árið 2021 með 99,93 stig
Heimsmeistaramót 2021 – 6.sæti
Evrópumót 2021 – 6.sæti
Íslandsmeistari 2021 í klassískum kraftlyftingum
Íslandsmeistari 2021 í klassískri réttstöðulyftu
Íslandsmeistari 2021 í réttstöðulyftu.
Sigraði á Reykjavíkurleikunum 2021
Íslandsmet í hnébeygju, bekkpressu og í samanlögðu á árinu.
Viktor hefur einu sinni áður hlotið þennan heiður er hann var valinn kraftlyftingakarl ársins 2015.