Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu sem haldið verður 22. júní. Mótið er aldursflokkaskipt og er bæði keppt í klassískri réttstöðu og í búnaði. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og verður staðsetning og endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdar- og aldursflokk. Skýrt skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án útbúnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@ka.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 1. júní. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 8. júní. Keppnisgjald er 6.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.