Skráning er hafin á Íslandsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður laugardaginn 16. maí. Mótshaldari er Kraftlyftingadeild Breiðabliks. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið robert@kjaran.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 25. apríl.
Beðist er afsökunar á að það láðist að senda út fyrr.
Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 2. maí. Keppnisgjald er 9.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
