Landsliðsnefnd KRAFT kallar eftir tilnefningum í landsliðsverkefni fyrir seinni hluta árs 2026. Tilnefningar skulu berast frá félögum fyrir 29. apríl nk.
Tilnefningar skal senda á netfangið coach@kraft.is og þar þarf að koma fram nafn, kennitala, sími og netfang viðkomandi keppanda og hvaða verkefni hann vill taka þátt í (mót og þyngdarflokkur). Taka skal fram hvenær keppandi náði lágmörkum og á hvaða mótum hann hefur keppt á síðasta ári.
