Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótin í réttstöðulyftu og klassískri réttstöðulyftu sem fara fram í Sporthúsinu í Kópavogi 10.júlí nk.
Skráningarfrestur er til miðnættis 19.júní og skal senda skráningu til jensandri@gmail.com með afrit til kraft@kraft.is
Frestur er svo til miðnættis 26.júni til að breyta skráningu og greiða keppnisgjald.
Gjaldið er 6000 ISK og skal greitt inn á reikning KRAFT 552-26-007004, kt . 700410-2180. Sendið afrit af kvittun með nafn félagsins á kraft@kraft.is
Í skráningu skal koma fram nafn félags og nafn og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar, nafn, kennitala og þyngdarflokk keppanda og skal taka skýrt fram í hvaða keppni viðkomandi er skráður; með eða án búnaðar.
Skrá skal líka aðstoðarmenn sem ætla að fá aðgang að vigtun og upphitun.
Á öllum meistaramótum gildir sú regla að keppendur hafi verið skráðir í kraftlyftingafélagi í amk þrjá mánuði.