Guðfinnur Snær Magnússon vann í dag til bronsverðlauna á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum. Hann hafnaði í þriðja sæti í +120 kg flokki unglinga (U23) með 870 kg í samanlögðum árangri.
Guðfinnur lyfti mest 350 kg í hnébeygju í þriðju tilraun, og tókst með því að vinna silfrið í greininni. Í bekkkpressu tók hann bronsið með því að lyfta 260 kg. Réttstöðulyftan fór gekk ekki alveg samkvæmt áætlun. Náði Guðfinnur aðeins opnunarþyngdinni með 260 kg eftir að hafa mistekist naumlega tvívegis að lyfta 290 kg, en sú þyngd hefði tryggt honum silfrið í samanlögðu. Rússanum Vladislav Nemov tókst að jafna árangur Guðfinns, 870 kg, og hrifsa af honum silfrið á minni líkamsþyngd.
Til hamingju með bronsið Guðfinnur!
Næstar Íslendinga lyfta þær Hulda B. Waage í -84 kg fl. og Árdís Ósk Steinarsdóttir í +84 kg fl., báðar í opnum aldursflokki. Þær hefja keppni kl. 09:00 á laugardaginn.