

Í dag kepptu tveir úr íslenska hópnum, það voru þau Agnes Ýr Rósmundsdóttir og Guðfinnur Snær Magnússon. Agnes keppir í +84 kg opnum flokki og Guðfinnur í +120 kg opnum flokki. Því miður þá var þetta ekki alveg mótið þeirra beggja en bæði féllu þau úr keppni í samanlögðu þegar þau náðu ekki gildri lyftu í bekkpressu.
Agnes opnaði í hnébeygju með 235 kg sem hreyfðust vel en voru ógild vegna dýptar. Hún negldi hins vegar sömu þyngd í annarri lyftu. Í þriðju hnébeygjunni reyndi Agnes við 245 kg en náði ekki dýpt. Önnur lyftan tryggði Agnesi brons í hnébeygju. Agnes reyndi þrisvar við 145 kg í bekknum en náði því miður ekki að klára lyfturnar. Í réttstöðulyftunni kom Agnes sterk tilbaka og opnaði með 195 kg sem flugu upp. Hún jafnaði í annarri lyftu sitt besta í réttstöðulyftu með 205 kg. Í lokalyftunni reyndi Agnes við persónulega bætingu með 215 kg á stönginni en þau vildu ekki fara upp að þessu sinni. Önnur lyftan, 205 kg, tryggðu Agnesi brons í réttstöðulyftu.
Í hnébeygjunni opnaði Guðfinnur með 420 kg beygju sem leit vel út en var ógild vegna dýptar. Hann hækkaði um 10 kg í annarri í 430 kg en aftur vantaði upp á dýptina. Í annarri hnébeygjunni meiddist hann í baki en kom samt ákveðinn á pallinn fyrir þriðju lyftu með 430 kg á stönginni sem hann kláraði örugglega. Þriðja lyftan tryggði Guðfinni silfur í hnébeygju. Guðfinnur opnaði í bekkpressu með 310 kg en náði ekki að klára. Í annarri og þriðju bekkpressu reyndi hann við 315 kg en náði ekki að klára þær lyftur. Vegna meiðslanna sem hann fékk í annarri hnébeygjunni tók Guðfinnur aðeins eina létta 75 kg réttstöðulyftu.
Þetta mót fór ekki alveg eins lagt var upp með hjá þeim Agnesi og Guðfinni en það fer í reynslubankann. Þau koma eflaust kröftug tilbaka á næsta búnaðarmót.
