Í morgun mætti annar af íslenska hópnum á keppnispallinn. Það var Alex Cambray Orrason sem keppir í -93 kg opnum flokki. Opnunarþyngdin í hnébeygju var 335 kg en hún var dæmd ógild vegna dýptar. Alex hækkaði um 10 kg í næstu lyftu, fór vel niður í dýpt en náði því miður ekki að klára lyftuna. Í þriðju beygjunni sýndi Alex hvað í honum býr og negldi 340 kg með þremur hvítum ljósum. Alex opnaði í bekkpressu með 215 kg á stönginni. Hann hækkaði um 5 kg í annarri en náði því miður ekki að læsa í lok lyftu. Í þriðja umferð bekkpressunnar hækkaði Alex þyngdina lítillega með 225 kg á stönginni en náði ekki að klára lyftuna. Í réttstöðulyftu var opnunarþyngdin hjá Alex 250 kg sem flugu upp hjá honum. Alex hækkaði í annarri umferð um 15 kg og 265 kg hreyfðust eins vel og fyrsta lyftan. Í lokalyftu réttstöðulyftunnar var 272,5 kg hlaðið á stönginni, Alex lyfti þeim en náði ekki að læsa alveg í lokin. Samanlagður árangur varð 825 kg. Innilega til hamingju með mótið, Alex !

