

Elsa Evrópumeistari !
Elsa Pálsdóttir mætti á pallinn í dag, að þessu sinni í -84 kg flokki M3. Þær stöllur Elsa og Inger frá Noregi áttu í góðri keppni um efsta sætið og sýndi Elsa hve öflug hún er í lokaumferð réttstöðulyftunnar og nældi í gullið í samanlögðu. Í hnébeygju opnaði Elsa á 135 kg, hækkaði síðan í 142,5 kg sem var tilraun til heimsmets. Önnur lyfta gekk ekki alveg sem skyldi en Elsa massaði þetta í þriðju hnébeygju með 142,5 kg og heimsmet komið í hús. Í bekkpressu opnaði Elsa á 60 kg, hækkaði síðan í 65 kg. Í þriðju lyftu reyndi hún við 67,5 kg en náði ekki að klára lyftuna. Elsa var í heimsmetagír í réttstöðulyftunni. Hún opnaði örugglega í réttstöðulyftu með 162,5 kg á stönginni. Í annarri umferð fóru 167,5 kg örugglega upp. Í síðustu réttstöðulyftunni gaf Elsa í, reif 170,0 kg upp af og tryggði sér enn eitt heimsmetið. Elsa tryggði sér Evrópumeistaratitilinn með samanlagðan árangur 377,5 kg , gull í hnébeygju, brons í bekkpressu og gull í réttstöðulyftu.
Innilega til hamingu með mótið, Íslandsmetin, heimsmetin og Evrópumeistaratitilinn, Elsa !
Hörður Birkisson keppti einnig í dag í -74 kg M3 flokki. Hörður opnaði á 170 kg í hnébeygju en fékk ekki gilda vegna tæknivillu. Hann massaði þyngdina í annarri umferð. Í þriðju hnébeygjunni hækkaði Hörður í 180 kg og kláraði hana af hörku. Þriðjan beygjan tryggði Herði brons í hnébeygju. Í bekkpressu opnaði Hörður á 90 kg. Í annarri hækkaði hann í 97,5 kg en náði ekki klára hana né sömu þyngd í þriðju umferð. Hörður opnaði í réttstöðulyftu með 190 kg. Hækkaði í 200 kg í annarri sem er aðeins 3 kg frá hans eigin Íslandsmeti og kláraði hana glæsilega. Í þriðju réttstöðulyftu voru 210 kg hlaðin á stöngina en því miður náði Hörður ekki að klára lyftuna. Hörður tryggði sér samt silfur í réttstöðulyftu með 200 kg í annarri umferð. Samanlagður árangur varð 470 kg.
Innilega til hamingju með mótið og verðlaunin, Hörður !
