Skip to content

EM öldunga í klassískum kraftlyftingum – Jóhann Frímann og Dagmar

Keppni á EM öldunga í klassískum kraftlyftingum hófst í dag.

Jóhann Frímann Traustason mætti fyrstur af íslensku keppendunum á pallinn. Hann keppir í -74 kg flokki M4.  Í hnébeygju lyfti Jóhann Frímann mest 85 kg sem er 5 kg persónuleg bæting. Jóhann Frímann jafnaði sinn besta árangur í bekkpressu þegar hann lyfti í þriðju lyftu 60 kg. Í réttstöðulyftu bætti hann sinn persónulega árangur um 5 kg þegar 105 kg fóru upp. Samanlagður árangur varð 250 kg sem er 10 kg persónuleg bæting.

Dagmar Agnarsdóttir var næst á pallinn. Hún keppir í -57kg flokki M4. Dagmar opnaði örugglega með 87,5 kg. Strax í annarri hnébeygju bætti Dagmar eigið heimsmet og Evrópumet þegar hún lyfti 95,5 kg og var sú lyfta einnig Íslandsmet. Helsti keppinautur Dagmarar náði að taka metin í þriðju beygju með 96 kg. Dagmar reyndi þá við 100 kg en vantaði bara herslumuninn að klára. Í bekkpressu tók Dagmar mest 40 kg. Í réttstöðulyftu opnaði Dagmar á 110 kg og í annarri lyfti Dagmar 117,5 kg. Í lokalyftunni reyndi Dagmar við 120 kg sem vildu ekki fara upp í þetta skiptið. Samanlagður árangur varð 253 kg. 

Innilega til hamingju með mótið, bætingarnar og metin, Jóhann Frímann og Dagmar !