

Birgit Rós Becker mætti fyrst af íslenska hópnum á pallinn í gær. Hún keppir í -76 kg flokknum. Í hnébeygju opnaði hún á öruggum 162,5 kg, hækkaði í 170 kg í annarri sem hún lyfti af sama öryggi. Í þriðju hnébeygjunni var 175 kg hlaðið á en Birgit náði ekki að klára lyftuna. Birgit opnaði í bekkpressu með 95 kg sem flugu upp. Í annarri lyfti hún 100 kg sem var jöfnun á hennar besta. Í þriðju bekkpressu hækkaði Birgit í 102,5 kg sem var tilraun til nýs Íslandsmets en því miður náði Birgit ekki að klára lyftuna. Birgit opnaði fyrstu réttstöðulyftuna með 165 kg, hækkaði síðan í 172,5 kg sem hún kláraði örugglega. Í lokalyftunni var 180 kg hlaðið á en kílóin vildu ekki upp að þessu sinni. Samanlagður árangur varð 442,5 kg. Innilega til hamingju með mótið, Birgit !
Í -105 kg flokknum áttu Ísland tvo fulltrúa, þá Alexander Örn Kárason og Viktor Samúelsson.
Alexander Örn Kárason keppti núna í fyrsta skipti í -105 kg flokknum á alþjóðamóti. Hann opnaði á öruggum 270 kg. Í annarri lyfti hann 292,5 kg sem voru 5 kg persónuleg bæting. Í þriðju umferðinni voru 305 kg sett á stöngina sem hann kláraði örugglega og þar með 14 kg bæting á Íslandsmeti. Alexander opnaði í bekkpressu með 190 kg, í annarri umferð hækkaði hann í 200 kg. Í þriðja bekknum lyfti Alexander 207,5 kg sem er 4 kg bæting á hans eigin Íslandsmeti. Alexander opnaði í réttstöðulyftunni með 285 kg sem hreyfðust létt. Í annarri umferð hækkaði hann um 12,5 kg og kláraði 307,5 kg lyftuna af sama öryggi. Í lokalyftunni var 315 kg hlaðið á og fóru þau upp en því miður gaf gripið sig. Samanlagður árangur varð 820 kg. Innilega til hamingju með Íslandsmetin, bætingarnar og mótið, Alexander !
Viktor Samúelsson opnaði með þægilegum 265 kg í hnébeygjunni. Í annarri umferð hækkaði hann í 275 kg sem hreyfðust eins og opnunin. Viktor hækkaði í þriðju hnébeygjunni í 285 kg sem eru aðeins 6 kg frá hans besta og kláraði hann lyftuna af öryggi. Í bekkpressunni opnaði Viktor með 180 kg. Hækkaði í 190 kg í annarri og svo í 195 kg í þriðju lyftu sem hann massaði af öryggi. Viktor opnaði í réttstöðulyftu með 305 kg sem flugu upp. Í annarri umferð hækkaði hann um 15 kg og fóru 320 kg upp. Í þriðju réttstöðulyftunni hækkaði Viktor í 330 kg sem yrði 2 kg persónuleg bæting á hans eigin Íslandsmeti. Viktor kláraði lyftuna af öryggi og nýtt met í hús. Samanlagður árangur varð 810 kg. Innilega til hamingju með Íslandsmetið og mótið, Viktor !
