Skráning er hafin á Bikarmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum í opnum flokki sem haldið verður laugardaginn 11. apríl. Mótshaldari er Lyftingadeild UMFN – Massi og verður mótið haldið í íþróttahúsinu Norðurstíg 4 í Njarðvík. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið massi@umfn.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 21. mars. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 28. mars. Keppnisgjald er 9.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180 (á ársþinginu 7.mars sl. var samþykkt að hækka keppnisgjöldin um 1.000 kr.).
