
Í dag sunnudaginn 15. mars byrjar Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum (opinn flokkur). Frá Íslandi mæta 7 öflugir keppendur. Mótið er haldið í St. Julians á Möltu. Verður eflaust gott fyrir hópinn að fá smá maltneskan hita fyrir átökin á pallinum. Mótið er fjölmennt eins og síðustu árin. Yfirþjálfari er Auðunn Jónsson og honum til aðstoðar eru Lára Bogey Finnbogadóttir. Helgi Hauksson mun sinna dómgæslu. Lára Bogey situr þing EPF fyrir hönd KRAFT.
Beint streymi er frá mótinu á YouTube rás EPF : BEINT STREYMI
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
FÖSTUDAGINN 20. MARS
Birgit Rós Becker, -76 kg flokkur (B grúppa) – Holl 1 – kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Alexander Örn Kárason, -105 kg flokkur (B grúppa) – Holl 2 – kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Viktor Samúelsson, -105 kg flokkur (B grúppa) – Holl 2 – kl. 10.00 að íslenskum tíma.
LAUGARDAGINN 21. MARS
Helgi Jón Sigurðsson, -120 kg flokkur (C grúppa) – Holl 1 – kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Kristín Þórhallsdóttir, -84 kg flokkur (A grúppa) – Holl 1 – kl. 17.00 að íslenskum tíma.
SUNNUDAGINN 22. MARS
Þorbjörg Matthíasdóttir, +84 kg flokkur – Holl 1 – kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Aron Friðrik Georgsson, +120 kg flokkur – Holl 2 – kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Áfram Ísland !
