Íslandsmótið í bekkpressu fer fram laugardaginn 19. janúar og verður hluti af alþjóðaleikunum Reykjavík International Games. Mótið fer fram í Laugardalshöllinni og munu 43 keppendur stíga á pall, þar af tveir norskir keppendur. Fyrirkomulag mótsins verður sem hér segir:
Hópur 1- Allar konur Vigtun kl. 08:00 Keppni hefst kl. 10:00
Hópur 2- Karlar 66 kg til og með 93 kg Vigtun kl.10:00 Keppni hefst kl. 12:00
Hópur 3 – Karlar 105 kg til og með +120kg Vigtun kl 10:00 Keppni hefst kl. 13:00.
Áætluð mótslok verða um kl. 15:00.