Eftir nokkra daga hefst Evrópumeistarmótið í kraftlyftingum með búnaði. Á mótinu er keppt í öllum aldursflokkum. Mótið er eins og oft áður haldið í borginni Pilsen í Tékklandi. Frá Íslandi mætir fjölmennur hópur í mörgum aldursflokkum. Aðalþjálfari er Auðunn Jónsson, aðstoðarþjálfarar Hjálmar Andrésson, Júlían J. K. Jóhannsson, Ingimundur Björgvinsson og Kristleifur Andrésson. Kristleifur mun einnig dæma á mótinu.
Beint streymi er frá mótinu á YouTube rás EPF : BEINT STREYMI
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
SUNNUDAGUR – 3. MAÍ
Andrés Þór Jóhannsson, -120 kg, unglingaflokkur – Holl 2 – kl. 12.30 að íslenskum tíma.
ÞRIÐJUDAGUR – 5. MAÍ
Alex Cambray Orrason, -93 kg, opinn flokkur – Holl 2 – kl. 09.00 að íslenskum tíma.
MIÐVIKUDAGUR – 6. MAÍ
Agnes Ýr Rósmundsdóttir, +84 kg, opinn flokkur – kl. 08.00 að íslenskum tíma.
Sóley Margrét Jónsdóttir, +84 kg, opinn flokkur – kl. 08.00 að íslenskum tíma.
Guðfinnur Snær Magnússon, +120 kg, opinn flokkur – Holl 2 – kl. 12.00 að íslenskum tíma.
FIMMTUDAGUR – 7. MAÍ
Elsa Pálsdóttir, -84 kg, master 3 flokkur – Holl 2 – kl. 08.00 að íslenskum tíma.
Sæmundur Guðmundsson, -83 kg, master 4 flokkur – Holl 3 – kl. 08.00 að íslenskum tíma.
Hörður Birkisson, -74 kg, master 3 flokkur – Holl 1 – Kl. 13.00 að íslenskum tíma.
FÖSTUDAGUR – 8. MAÍ
Jens Kristinsson, -105 kg, master 3 flokkur – Holl 1 – kl. 08.00 að íslenskum tíma.
Áfram Ísland !
