Skráning er hafin í dómarapróf KRAFT. Prófað verður skriflega úr keppnisreglum IPF og síðan fer fram verklegt próf í vigtun og dómgæslu. Verklegi hluti prófsins fer fram 23. maí á Æfinga- og byrjendamótinu í kraftlyftingum. Skriflegi hluti prófsins verður haldinn um morguninn í Íþróttahúsinu við Skólastíg. Nákvæm tímasetning verður auglýst síðar. Það er fjöldatakmarkanir í dómarapróf en það kemur betur í ljós þegar ljóst er hve margir vilja þreyta prófið.
KRAFT áskilur sér þann rétt að takmarka fjölda próftaka við einn frá hverju félagi ef fjöldi þeirra verður of mikill.
Skráningu skal senda á kraft@kraft.is með afriti á helgih@internet.is fyrir miðnætti laugardagins 9. maí. Í skráningu skal koma fram nafn próftaka, kennitala, félag og símanúmer. Prófgjald er 12.000 kr. og greiðist inn á reikning KRAFT 552-26-007004, kt. 700410-2180.
