Helgi Jón Sigurðsson keppti í dag á sínu fyrsta alþjóðamóti í opnum flokki. Helgi Jón keppir í -120 kg flokknum. Í hnébeygjunni opnaði Helgi Jón á léttum 290 kg og hækkaði í 305 kg sem hann beygði af öryggi. Í þriðju beygjunni reyndi Helgi Jón við bætingu á eigin Íslandsmeti þegar 312,5 kg var hlaðið á stöngina en því miður náði Helgi Jón ekki að klára lyftuna. Í bekkpressu opnaði Helgi Jón á þægilegum 185 kg. Í annarri umferð hækkaði Helgi Jón í 192,5 kg, náði að klára lyftuna eftir smá ströggl á leiðinni upp. Í þriðju gerði Helgi Jón tilraun við að jafna sitt besta með 195 kg á stönginni en náði því miður ekki að klára lyftuna. Helgi Jón opnaði í réttstöðulyftu með 300 kg sem hann kláraði örugglega. Hann reyndi síðan við 317,5 kg sem vildu ekki hreyfast. Samanlagður árangur varð 797,5 kg. Innilega til hamingju með mótið, Helgi Jón !

