Skráning er hafin á Æfinga- og byrjendamótið í kraftlyftingum (klassík og búnaður) sem fram fer laugardaginn 1. febrúar. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og verður mótið haldið í húsnæði félagsins að Tryggvabraut 22, Akureyri. Endanleg tímaáætlun verður auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Mótið er haldið í tengslum við dómarapróf Kraftlyftingasambandsins og klára prófkandídatar verklega þáttinn með því að dæma á mótinu.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur þar sem fram kemur nafn, kennitala, félag og þyngdarflokkur. Þá skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.
Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@ka.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 11. janúar. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 18. janúar. Keppnisgjald er 8000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.