Sumarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 10. júní nk. og verður í boði að taka 1. og 2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.
Fyrsta stigið tekur átta vikur en annað stigið tekur fimm vikur. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi
ÍSÍ hverju sinni.
Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Abler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Námskeiðsgjald:
1. stig kr. 36.000.-
2. stig kr. 30.000.-
Þjálfarar sem koma frá Fyrirmyndarfélögum ÍSÍ fá kr. 5000.- í afslátt. Skráningarfrestur er til 9. júní.
Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 og 863-1399 eða á vidar@isi.is.