Sæmundur Guðmundsson tryggði sér í dag Evrópumeistaratitilinn á EM öldunga í kraftlyftingum með búnaði í aldursflokknum 70–79 ára. Sæmundur sem keppti í –83 kg flokki tók seríuna 170 – 105 – 190 = 465 kg og gerði sér lítið fyrir og vann til gullverðlauna í öllum greinum. Engin Íslandsmet voru skráð í þessum þyngdar- og aldursflokk og eru því allar gildar lyftur hjá honum Íslandsmet. Sannarlega frábær dagur hjá Sæmundi. Til hamingju með Evrópumeistaratitilinn og metin!