Skráning er hafin á Bikarmótin í kraftlyftingum sem haldin verða helgina 21.–22. október nk. Bæði verður keppt í kraftlyftingum með útbúnaði og í klassískum kraftlyftingum. Mótin eru í umsjá Kraftlyftingafélags Mosfellsbæjar og fara fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá, Mosfellsbæ. Endanleg dag- og tímasetning verður ákveðin þegar skráningu er lokið og keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Skýrt skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án útbúnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal fylgja. Hér eru um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningar skal senda á netfangið hjaltiar@icloud.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 30. september. Keppnisgjald er 7.500 kr. og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.