Skip to content

Skráning er hafin á Íslandsmótið í réttstöðu.

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu, sem fram fer þann 20. maí nk. Bæði er keppt í klassískri réttstöðu og með útbúnaði. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og verður mótið haldið í KA heimilinu, Dalsbraut 1, Akureyri. Endanleg tímaáætlun verður ákveðin þegar skráning og keppendafjöldi liggur fyrir.

Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdarflokk og aldursflokk þar sem það á við. Skýrt skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal fylgja.
Hér eru um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@ka.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 29. apríl. Keppnisgjald er 6.500 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.