Elsa Pálsdóttir varði í dag Evrópumeistaratitil sinn í klassískum kraftlyftingum í -76kg flokki M3 á EM sem nú stendur yfir í Litháen.
Hún lyfti 125 – 60 – 155 = 340 kg, vann gull í öllum greinum og var stigahæsta konan í M3, aldrei spurning.
Við óskum henni innilega til hamingju! Frábær fyrirmynd á sjálfum baráttudegi kvenna.
Á morgun lyftir Hörður Birgisson í -74kg fl M3. Keppnin byrjar kl 16.00 á íslenskum tíma.