Viktor Samúelsson, KFA, keppir á morgun laugardag á HM unglinga í Póllandi.
Viktor keppir í -105,0 kg flokki 19 – 23 ára, en hann er fæddur 1993 og því á fyrsta ári í þessum aldursflokki. Þetta er í fyrsta skiptið sem Viktor mætir til leiks á heimsmeistaramóti, en hann hefur keppt á tveimur evrópumótum og staðið sig vel. Hann er s.s. enginn nýgræðlingur í faginu.
Viktor hefur sýnt stöðugum framförum á undanförnum mótum og við væntum þess að hann bætir sig en frekar á morgun.
Fylgist með Viktor í beinni vefútsendingu: http://goodlift.info/live/onlineside.html
Keppnin hefst kl. 15.00 að staðartíma, eða kl. 13.00 á íslenskum tíma.
Kraftakveðjur til Viktors og hans aðstoðarmanna. Koma svo!!