Skráning er hafin á Íslandsmót unglinga og öldunga í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður laugardaginn 18. nóvember nk. Mótið er í umsjá Kraftlyftingafélags Akraness og fer mótið fram í líkamsræktaraðstöðu Ægis að Hafnarbraut 8, Akranesi. Endanleg tímasetning verður ákveðin þegar skráningu er lokið og keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal fylgja. Hér eru um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningar skal senda á netfangið lara@kraft.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 28. október. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk hjá þeim sem eru skráðir til þátttöku er til miðnættis laugardaginn 4. nóvember. Keppnisgjald er 7.500 kr. og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.