Skip to content

Skráning er hafin á Bikarmótin í klassískum kraftlyftingum og bekkpressu með búnaði.

Skráning er hafin á Bikarmótið í klassískum kraftlyftingum og Bikarmótið í bekkpressu með búnaði, sem haldin verða 6.–7. apríl nk. Mótin eru í umsjá Kraftlyftingadeildar Breiðabliks og verður endanleg tímasetning ákveðin þegar skráningu er lokið og keppendafjöldi liggur fyrir.

Félög skulu senda inn upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, aldurs- og þyngdarflokk. Skýrt skal taka fram á hvoru mótinu viðkomandi ætlar að keppa á (ef ekki báðum), en einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra og netföng ásamt símanúmeri ábyrgðarmanns skráningar. Hér er um meistaramót að ræða og gildir því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningar skal senda á netfangið robert@kjaran.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 17. mars. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk hjá þeim sem eru skráðir til þátttöku er til miðnættis sunnudaginn 24. mars. Keppnisgjald er 7.500 kr. á þrílyftumótið en 6000 kr á bekkpressumótið og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.

(Athugið: Í fyrstu útgáfu tilkynningarinnar voru frestirnir ranglega sagðir 10. mars og 17. mars en hefur verið leiðrétt.)