Íslenski þjóðsöngurinn fékk að hljóma á EM í klassískum kraftlyftingum í morgun þegar Kristín Þórhallsdóttir kom, sá og gjörsigraði í -84 kg flokknum, á nýju Evrópumeti.
Kristín lyfti af miklu öryggi 200-212,5-220 í hnébeygju, en það er nýtt Evrópumet.
Í bekkpressu lyfti hún 102,5-110-115, en það er bæting á Íslandsmeti.
I réttstöðu lyfti hún 212,5 og 225 sem er nýtt Íslandsmet og tryggði henni 560kg samanlagt, sem er nýtt Evrópumet í flokknum.
Hún endaði á góðri tilraun til að ná Evrópumeti í réttstöðu með 230,5kg.
Evrópumeistaratitill, gull í öllum greinum, tvö Evrópumet og Íslandsmet í öllum greinum er uppskera dagsins.
Við óskum Kristínu innilega til hamingju með magnaðan árangur!
Kristín brýtur hér blað í sögu kraftlyftinga og verður fyrsti íslendingurinn til að vinna Evrópumeistaratitil í þríþraut.