Starf Kraftlyftingafélags Akraness stendur með miklum blóma, en þar eru menn búnir að gera upp æfingaraðstöðuna sína og hyggja á bætingar.
Sigurjón Pétursson formaður Kraft og varaformaðurinn Guðjón Hafliðason hittu stjórnina á fundi í herbúðum þeirra á Akranesi þriðjudaginn 21. september sl.
Heimsóknin var einkar ánægjuleg og áttu þeir félagar gott spjall við drífandi og áhugasama Skagamenn.
Eftir fundinn var kíkt á lyftingaraðstöðuna og stórgóð tækin, hnébeygjustatíf og bekk, smíðuð af Baldvin „bekk”.
Nokkrir fundarmanna tóku æfingu og urðu þeir Sigurjón og Guðjón þar vitni að frábærum tilþrifum 17 ára nýliða í kraftlyftingum, sem er í raun nýbyrjaður að æfa. Drengurinn heitir Jón Haukur Pálmarson 17 ára og gerði hann sér lítið fyrir og jafnaði Íslandsmetið í sínum þyngdarflokki í réttstöðulyftu þarna á æfingunni. Hann skellti sem sagt upp 180 kg.
Jón Haukur stefnir að því að keppa á Bikarmótinu, og verður sjálfsagt ekki eini Skagamaðurinn sem lætur til sín taka þar.
Félagið heldur Íslandsmeistaramótið í bekkpressu eftir áramót, en keppendur geta hlakkað til ef framkvæmdin verður í líkingu við mótið sem þeir héldu í fyrra.