Fulltrúi ÍSÍ afhenti formanni Kraftlyftingafélags Akureyrar viðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á bikarmóti KRAFT um helginga.
KFA verður þar með annað aðildarfélag KRAFT sem nær því markmiði. Áður hafði Heiðrún, Kraftlyftingafélag Garðabæjar, fengið þessa viðurkenningu.
Við óskum Akureyringum til hamingju með þessa nafnbót og hvetjum önnur félög til að huga að þessu líka.