Skip to content

Íslandsmót unglinga og öldunga – Skráningu lokið.

Skráningu á Íslandsmót unglinga og öldunga í klassískum kraftlyftingum er lokið. Óhætt er að segja að það stefni allt í metþátttöku en 101 keppendur eru skráðir á mótið, þar af 58 í unglingaflokka og 43 í öldungaflokka.

Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk hjá þeim sem skráðir eru til þátttöku er til miðnættis laugardaginn 20. apríl.

KEPPENDALISTI