Skip to content

Íslandsmót unglinga og öldunga í klassískum kraftlyftingum – Skráning er hafin.

Skráning er hafin á Íslandsmót unglinga og öldunga í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður laugardaginn 4. maí en mótshaldari er Lyftingadeild Stjörnunnar. Nánari tímasetning verður auglýst síðar þegar skráningu er lokið og keppendafjöldi liggur fyrir.

Félög skulu senda inn upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, aldurs- og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra og netföng ásamt símanúmeri ábyrgðarmanns skráningar. Hér er um meistaramót að ræða og gildir því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningar skal senda á netfangið lyftingar@stjarnan.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 13. apríl. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk hjá þeim sem eru skráðir til þátttöku er til miðnættis laugardaginn 20. apríl. Keppnisgjald er 8000 kr. og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.