Í gær fór fram Íslandsmeistaramótið í bekkpressu með búnaði. Mótshaldari var lyftingadeild Ármanns og var mótið haldið í húsakynnum deildarinnar í Laugardalnum. Mótið var aldursskipt og var mjög fjölmennt, bæði í kvenna- og karlaflokki. Fjöldi fólks mætti til að hvetja vini og vandamenn. Fjöldi Íslandsmeta féllu í öllum aldursflokkum og margir bættu sinn persónulega árangur.
Sjá öll úrslit HÉR.
Upptaka frá mótinu HÉR.
Stigahæstu einstaklingar urðu þessir:
KVENNAFLOKKUR
Opinn flokkur: Sóley Margrét Jónsdóttir (BRE)
Unglingaflokkur: Jóhanna Rún Steingrímsdóttir (ÁRM)
Öldungaflokkur 1: Rebekka Silvía Ragnarsdóttir (KFR)
Öldungaflokkur 2: Guðný Ásta Snorradóttir (KFR)
Öldungaflokkur 3: Elsa Pálsdóttir (MAS)
KARLAFLOKKUR
Opinn flokkur: Jón Sigurður Gunnarsson (ÁRM)
Unglingaflokkur: Andrés Þór Jóhannsson (KFR)
Drengjaflokkur: Anton Haukur Þórlindsson (KFR)
Öldungaflokkur 1: Davíð Þór Penalver (MAS)
Öldungaflokkur 2: Heiðar Guðjónsson (KFR)
Öldungaflokkur 3: Hörður Birkisson (MAS)
