Skip to content

Íslandsmeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum – ÚRSLIT

Í gær var ÍM unglinga í klassískum kraftlyftingum haldið í húsakynnum Kraftlyftingafélags Reykjavíkur. Mótið var eins ætla mátti fjölmennt. Fjöldi gesta mætti á svæðið til að styðja sitt fólk og sitt lið. Frábær stemning og keppendur fengu rosalega hvatningu frá salnum. Fjölmörg Íslandsmet féllu, margir tóku persónulegar bætingar og það var ánægjulegt að það bættist í hóp unglinga sem náðu lágmörkum á stórmót á árinu.

Stigahæstu einstaklingarnir í öllum fjórum flokkunum voru:

Sub-junior konur : Guðrún Ásgeirsdóttir (MOS)
Sub-junior karlar : Ragnar Ingi Ragnarsson (ÁRM)
Junior konur : Signý Lára Kristinsdóttir (BRE)
Junior karlar : Benoný Helgi Benonýsson (BRE)

Heildarúrslit má finna HÉR.
Upptöku af mótinu má finna HÉR.

KRAFT óskar öllum keppendum innilega til hamingju með mótið !